Portúgalska götublaðið Correio da Manha, sem reyndar ekki er þekkt fyrir að vera vant að virðingu sinni, birtir í dag frétt þess efnis að forráðamenn enska úrvalsdeildarliðsins Liverpool hafi samþykkt að greiða 25 milljónir punda fyrir Fabio Coentrao, bakvörð Benfica. Enskir netmiðlar slá því hins vegar upp að Liverpool-menn séu í þann mund að klófesta Scott Parker fyrir 10 milljónir punda frá West Ham.
Fabio Coentrao er 23 ára Portúgali sem vakið hefur athygli fyrir vasklega framgöngu sína í stöðu vinstri bakvarðar hjá Benfica, en hann getur einnig leikið í stöðu vinstri kantmanns með ágætum árangri.. Hann á að baki tólf landsleiki fyrir Portúgali og skeiðaði m.a. um grænar grundir í Laugardalnum í október í fyrra í landsliðstreyjunni.
Kenny Dalglish hefur leitað logandi ljósi að vinstri bakverði nánast allar götur síðan hann settist í stjórastólinn á Anfield, um tíma virtist sem José Enrique væri á leið til Liverpool frá Newcastle og jafnvel voru til þeir sem vildu staðfesta þau vistaskipti og kappar á borð við Leighton Baines og Gael Clichy hafa verið nefndir til sögunnar. Lausnin er hins vegar falin í Fabio Coentrao, ef marka má götublaðið portúgalska, og kaupverðið er 25 milljónir punda.
Liverpool-menn safna liði þessa dagana og fastlega er gert ráð fyrir því að tilboð verði gert í Scott Parker, miðjumann West Ham, á allra næstu dögum. Parker er almennt talinn alltof góður leikmaður til að spila í næstefstu deild á Englandi og vitað er af áhuga nokkurra úrvalsdeildarliða á að fá hann til liðs við sig. Liverpool-menn stefna á að forðast tilboðastríð og ætla að skella 10 milljóna punda tilboði á borðið svo að hægt verði að afgreiða málið hratt og örugglega.
Tekið af http://www.sport.is/